Hæ hæ! Ég heiti Hrafnhildur, þriggja barna móðir frá Stykkishómi og á Hjal.is þar sem ég sel eingöngu vörur sem ég hef trú á. 

Ég hef prófað endalaust af barnavörum í gegnum árin, en SoftSip sogtopparnir eru ein af fáum vörum sem ég nota enn – jafnvel núna þegar börnin mín eru orðin eldri. Ef þið gefið börnunum ykkar skvísur, haltu þá áfram að lesa: Ég ætla að segja ykkur hvers vegna þið ættuð að nota sogtoppana!

 

Ferðalögin og matartíminn urðu einfaldari

Þegar börnin mín voru yngri var ég mikið á ferðinni með þau og var þá einfaldast að grípa skvísur með til að nasla á, á ferðinni.  Það var fátt verra en þegar barnið náði að grípa í skvísuna, veifa henni útum allt, maukið fer yfir þig, barnið, stólinn og bílinn. 

Á matartíma þá þótti barninu fátt skemmtilegra en að kreista allt úr henni á borðið og sulla í maukinu og ef hún datt á gólfið þá fór allt upp um alla veggi, eins og ég er viss um að þú hafir lent í ef þú átt börn. 

SoftSip sogtopparnir koma í veg fyrir að maukið fari út um allt, það er hægt að loka þeim án þess að þurfa að hafa áhyggjur af tappanum og hægt að geyma restina þar til seinna.

Sogtoppurinn styður við sjálfstæði í matartímanum og gerir hann því einfaldari þegar þú þarft ekki stöðugt að fylgjast með og passa uppá að barnið tæmi ekki allt úr skvísunni.

Sogtoppurinn er snilldar uppfinning.

Hann er algjör “game-changer”! Vegna þess hvernig sogtoppurinn er hannaður, þá þarf að kreista skvísuna töluvert til að ná matnum úr henni, börnin þurfa alveg að hafa smá fyrir því að sjúga úr henni líka en þau eru fljótt að læra á hana, það lekur ekki allt úr henni þó þau kreista hana eða missa í gólfið. 

Sogtoppurinn er í raun ventill sem þú skrúfar á skvísuna og það er tappi sem er áfastur þannig að þú getur lokað skvísunni, þarft ekki að geyma tappann af henni og vera að skipta á toppnum og tappanum. 

Sogtoppurinn passar á flestar, ef ekki alla skvísupoka, ég hef ekki fundið neinn sem hann passa ekki á í verslunum á Íslandi

Af hverju ætti ég að velja þá frekar enn eitthvað annað?

Einfalt, það er ekkert annað sambærilegt á markaðnum núna. Sem verslunareigandi hef ég prófað helling af barnavörum, það sem stendur upp úr hjá mér er sogtoppurinn, alltaf. Ég gríp hann oft ennþá og börnin mín líka. 

Hann er úr “food-grade” sílikoni og eru mjúkir, meiða ekki góma né tennur. Það fer lítið fyrir honum og því alltaf pláss fyrir hann.

Fullkomið fyrir foreldra:

Ég mæli með Softsip sogtoppunum fyrir:

  • Foreldra sem eru byrjaðir að kynna nýjan mat fyrir börnunum
  • Foreldra barna á aldrinu 1-3 ára, á meðan þau eru að læra borðsiði og lengur
  • Foreldra sem eru mikið á ferðinni og vilja aðeins auðvelda lífið.

Aðeins minni sóðaskapur léttir lífið og gerir það auðveldara.

Svör við nokkrum spurningum:

Þetta eru algengustu spurningarnar:

  • Passa þeir á skvísurnar sem fást útí búð? Já, ég hef keypt flestar ef ekki allar tegundir af skvísum sem fást á Íslandi og hef ekki fundið eina sem þeir passa ekki á
  • Eru þeir öruggir? Já þeir eru það,: þeir eru mjúkir, sveigjalegir, úr “food-grade” sílikoni sem er mjúkt fyrir góma og tennur
  • Taka þeir mikið pláss? Nei, það fer mjög lítið fyrir þeim. Það er hægt að fá þá í ferðaboxi líka.
  • Munu börnin mín vilja nota þá? Min börn biðja ennþá um þá þó þau séu orðnir eldri.

 

Ég gríp þá ennþá þó ég þurfi ekki á þeim að halda

Sem kröfuhörð þriggja barna móðir og verslunareigandi mæli ég ekki með hverju sem er. SoftSip-topparnir auka sjálfstæði, minnka sóðaskap, einfalda ferðalög og börnin verða sáttari (og foreldra líka). Ef þú notar skvísur, þá skaltu næla þér í sogtoppa – lítil hlutur sem einfaldar lífið. Geðheilsan þín (og bleyjutaskan) mun þakka þér!

Sogtopparnir koma í nokkru gerðum og stærðum:

ChooMee – Sogtoppar úr sílikon 2 stk í boxi

ChooMee – Sogtoppar úr sílikon 4 stk

Það er líka hægt að fá fjölnota/margnota skvísupoka ef þú vilt gera sjálf/ur:

Skvísupokar, skvísustöð og fylgihlutir

Choomee vörurnar